27.02.22 - 22:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Sif á bekknum þegar ÍBV valtaði yfir Selfoss

ÍBV skoraði fjögur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Sif Atladóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV skoraði fjögur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það voru þrír leikir í A-deild Lengjubikars kvenna á þessum ágæta sunnudegi.
ÍBV gerði góða ferð á Selfoss og tókst að vinna sannfærandi sigur í leik á milli tveggja félaga sem leika í Bestu deildinni í sumar.
Ameera Abdella Hussen gerði tvö mörk fyrir ÍBV í leiknum. Hún er bandarískur miðjumaður sem samdi við Vestmannaeyinga í síðasta mánuði. Hún lék áður í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og verður spennandi að fylgjast með hennar framgöngu á vellinum í sumar.
ÍBV vann að lokum 0-4 sigur og er liðið núna með þrjú stig eftir tvo leiki. Selfoss er án stiga.
Landsliðskonan Sif Atladóttir var á meðal varamanna hjá Selfossi í da og kom ekki við sögu. Hún er nýkomin úr landsliðsverkefni í Bandaríkjunum.
Afturelding vann 2-1 sigur gegn Þór/KA í hinum úrvalsdeildarslag dagsins. Afturelding er nýliði í Bestu deildinni og er þetta sterkur sigur fyrir þær.
Bæði lið eru með þrjú stig, Afturelding eftir einn leik og Þór/KA eftir tvo leiki.
Þá vann Keflavík sannfærandi sigur gegn Fylki, sem féll úr efstu deild síðasta sumar. Keflavík tók forystuna á fmmtu mínútu og sleppti henni aldrei, lokatölur 0-3 í Árbænum.
Bæði Keflavík og Fylkir hafa leikið tvo leiki og eru með þrjú stig. Þau eru í sama riðli og Afturelding og Þór/KA, riðli 2.
Selfoss 0 - 4 ÍBV
0-1 Ameera Abdella Hussen ('7)
0-2 Bergrós Ásgeirsdóttir ('42, sjálfsmark)
0-3 Thelma Sól Óðinsdóttir ('49)
0-4 Ameera Abdella Hussen ('59)
Fylkir 0 - 3 Keflavík
0-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('5)
0-2 Sigurrós Eir Guðmundsdóttir ('73)
0-3 Saga Rún Ingólfsdóttir ('86)
Afturelding 2 - 1 Þór/KA

Afturelding lagði Þór/KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð