Fotbolti.net
27.04.21 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hazard: Alltaf gaman að spila á móti vinum

Hazard: Alltaf gaman að spila á móti vinum
Canon

Mynd: EPA

„Þetta hefði getað verið betra en þetta gæti einnig verið verra! Við förum til Engands til að ná í sigur," sagði Eden Hazard, leikmaður Real Madrid, eftir jafntefli gegn Chelsea.

Hazard hefur verið mikið meiddur frá komu sinni til Real en er að koma til baka.

„Ég er að koma til baka, auðvitað vil ég spila og er að taka þetta skref fyrir skref. Ég spilaði meira í dag en í leiknum á undan. Við erum með leiki framundan og ég vil vera klár í að spila aftur. Ég er mjög glaður að vera aftur farinn að spila."
Hazard er fyrrum leikmaður Chelsea og lék með liðinu á árunum 2012-2019.

„Það er alltaf gaman að spila á móti vinum. Ég er leikmaður Real Madrid og vildi því vinna," sagði Hazard.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.