Kristófer er miðjumaður sem gekk í raðir Vals frá uppeldisfélaginu Haukum eftir síðasta tímabil. Hann lék 24 leiki í deild og bikar fyrir Hauka áður en hann skipti yfir í Val.
Kristófer lék þá tíu leiki með U16 og U17 ára landsliðum Íslands og í þeim skoraði hann eitt mark. Kristófer varð átján ára í mars og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Kristófer lék þá tíu leiki með U16 og U17 ára landsliðum Íslands og í þeim skoraði hann eitt mark. Kristófer varð átján ára í mars og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Kristófer Jónsson
Gælunafn: Kristó, KJ, Kris
Aldur: 18 ára
Hjúskaparstaða: á lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: eh æfingaleikur í byrjun 2019
Uppáhalds drykkur: Egils Appelsín
Uppáhalds matsölustaður: Nando’s
Hvernig bíl áttu: keyri um á Aygo
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: The Office þættirnir klikka ekki
Uppáhalds tónlistarmaður: Pop Smoke og Drake eru öflugir
Uppáhalds hlaðvarp: hlusta mjög sjaldan á hlaðvörp
Fyndnasti Íslendingurinn: FM95BLÖ fær mann til að hlægja
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Bláber, Snickerskurl og daím og lakkrís
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: okidoki frá mömmu
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: aldrei segja aldrei en sem uppalinn Haukamaður ætti ég erfitt með að spila með FH
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Valsliðið fær þann titil
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: hef verið heppinn með þjálfara í gegnum ferilinn sem hafa hjálpað mér mikið, þar má nefna Frey Sverrison sem þjálfaði mig upp nánast alla yngri flokkana.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Kristinn Freyr getur verið óþolandi góður á æfingum
Sætasti sigurinn: fyrsti byrjunarliðsleikurinn minn og mitt fyrsta mark í Íslandsmóti á móti Fjarðarbyggð í fyrra var eftirminnilegt, ekkert endilega sá sætasti.
Mestu vonbrigðin: nárameiðsli sem eru búin að vera on off í eitt og hálft ár
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: bróðir minn Ísak Jónsson, alvöru chemistry
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Ísak Bergmann
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi:
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: margar fallegar
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Lionel Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Sverrir Páll
Uppáhalds staður á Íslandi: Hafnarjörður
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: þegar ég var yngri átti ég erfitt með að tapa og stjórna skapinu sem varð til þess að Freyr þjálfari þurfti oft að taka mig útaf og kæla mig niður.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: fylgist mikið með golfi
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Náttúru og raungreina áfangar fá þann heiður
Vandræðalegasta augnablik:
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: ég myndi taka Sverri með til að halda stemningunni uppi á meðan Rasmus og Arnór Smára koma okkur þaðan asap
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: spilaði í Portsmouth akademíunni þegar ég var 12-13 ára.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Arnór Smárason, ég veit svo sem ekkert við hverju ég var að búast en hann er mikill fagmaður.
Hverju laugstu síðast: Á erfitt með að ljúga en hef svo sem logið til um aldur til að komast í sund
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hlaup án bolta
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja:
Athugasemdir