Fotbolti.net
27.04.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - BBC blæs til sóknar

Manchester City vann 1-0 sigur á móti Tottenham í úrslitaleik enska deildabikarsins um helgina og Manchester United gerði markalaust jafntefli við Leeds United í ensku úrvalsdeildinni.

Chris Wood skoraði þrennu þegar Burnley fór illa með Úlfana 4-0, sjálfsmark Bernd Leno tryggði Everton 1-0 sigur ggn Arsenal og fallið lið Sheffield United vann Brighton.
Chelsea vann West Ham í mikilvægum leik í baráttu um Meistaradeildarsæti, Liverpool fékk á sig mark í uppbótartíma í 1-1 jafntefli gegn Newcastle, Aston Villa gerði jafntefli við West Brom og Leicester vann endurkomusigur gegn Crystal Palace.

Garth Crooks hjá BBC hefur valið úrvalslið vikunnar.
Markvörður: Jordan Pickford (Everton) - Hélt hreinu í sigri gegn Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Ben Chilwell (Chelsea) - Reyndist West Ham erfiður ljár í þúfu. Átti stoðsendinguna í sigurmarkinu.

Varnarmaður: James Tarkowski (Burnley) - Ákaflega öflugur þegar Burnley burstaði Wolves.

Varnarmaður: Aymeric Laporte (Manchester City) - Skoraði sigurmark City í úrslitaleik deildabikarsins. Fjórða árið í röð sem Man City vinnur þennan titil.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Cesar Azpilicueta (Chelsea) - Sannur leiðtogi og gríðarlega áreiðanlegur.

Varnarmaður: Cesar Azpilicueta (Chelsea) - Sannur leiðtogi og gríðarlega áreiðanlegur.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Kalvin Phillips (Leeds) - Leikurinn gegn Man Utd var ekki mikið fyrir augað en Phillips var öflugur.

Miðjumaður: N'Golo Kante (Chelsea) - Heldur áfram að spila frábærlega.

Sóknarmaður: Kelechi Iheanacho (Leicester) - Geggjað sigurmark gegn Palace og átti stoðsendingu í fyrra marki Leicester. Sá er heitur þessa dagana!

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Skoraði mark Liverpool gegn Newcastle.

Sóknarmaður: Chris Wood (Burnley) - Skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

Sóknarmaður: Timo Werner (Chelsea) - Skoraði sigurmark Chelsea gegn West Ham.

Sóknarmaður: Timo Werner (Chelsea) - Skoraði sigurmark Chelsea gegn West Ham.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.