Stuðlabandið framan á treyjum Selfyssinga
Auglýsing

Mynd: Stuðlabandið

Mynd: Stuðlabandið
Knattspyrnudeild Selfoss og sunnlenska ballhljómsveitin Stuðlabandið hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning. Meistaraflokkslið karla og kvenna hjá Selfossi munu bera merki Stuðlabandsins framan á keppnistreyjum sínum næstu þrjú árin.
„Stuðlabandið ættu allir Sunnlendingar að þekkja en hljómsveitin er ein sú allra vinsælasta á landinu um þessar mundir. Flestir meðlimir sveitarinnar léku með yngri flokkum Selfoss í knattspyrnu og því tenging þeirra við knattspyrnuna á Selfossi sterk," segir í fréttatilkynningu.
Selfoss er annað fótboltafélagið á Íslandi með hljómsveit sem aðalstyrktaraðila framan á treyjum sínum en Kaleo styrkir Aftureldingu í Mosfellsbæ.
„Við erum virkilega spenntir fyrir þessu samstarfi og erum mjög ánægðir að geta tekið þátt í starfinu með þessum hætti og stutt okkar fólk næstu árin. Svo hvetjum við auðvitað alla Sunnlendinga til að fjölmenna á völlin í sumar og taka þátt með okkur," segir Marinó Geir, trommari Stuðlabandsins.
Búningurinn verður formlega frumsýndur í kvöld þegar Selfoss mætir til leiks í Bestu deild kvenna og mætir einmitt Aftureldingu í Mosfellsbæ klukkan 19:15.