Fotbolti.net
27.05.17 - 17:53
Valgerður Stella Kristjánsdóttir

Gunnar: Sveindís er alltaf tekin föstum töku

Auglýsing
Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur.

Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þetta var fyrsta tapið okkar í deildinni en við töpuðum í vítaspyrnukeppni í bikarnum um daginn. Það er alltaf ömurlegt að tapa, ekkert sem við ætluðum okkur en svona getur fótboltinn verið,\" sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur við Fótbolta.net eftir 1-3 tap heima gegn ÍR í 1. deild kvenna í kvöld.
Keflavík sótti stíft í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora þó liðið hafi leitað mikið á Sveindísi Jane Jónsdóttur í fremstu víglínu.

„Hún er mjög öflugur sóknarmaður og eitt af okkar sterkustu vopnum. Hin liðin vita af því og hún er tekin mjög föstum tökum alltaf, eðlilega,\" sagði Gunnar Magnús.

„En þrátt fyrir að vera 1-0 undir í hálfleik fannst mér fyrri hálfleikur góður hjá okkur, fínt spil og fín færi. Í seinni hálfleik líka þegar við sýndum karakter og náðum að jafna. En eftir jöfnunarmarkið datt þetta töluvert niður hjá okkur. Fótboltinn er ekki alltaf sanngjarn.\"

„Ef tölfræði á Úrslit.net lýgur ekki þá eru 29 marktilraunir hjá okkur á móti 9. 14 á rammann og 4. Þær voru grimmar, komu hingað með bakið upp við vegg og voru fastar og sterkar fyrir. Krafturinn vann í dag.\"


Nánar er rætt við Gunnar Magnús í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.