Barcelona hefur náð samkomulagi við Newcastle um kaup á enska vængmanninum Anthony Gordon. Kaupverðið nemur um 70 milljónum punda auk bónusgreiðslna.
Bayern Munchen hafði jafnframt áhuga á Gordon og hafði félagið náð samkomulagi við leikmanninn um kjör.
Gordon, sem er 25 ára, skoraði 17 mörk í 45 leikjum í öllum keppnum á nýafstöðnu tímabili. Af mörkunum sautján komu tíu þeirra í Meistaradeildinni.
Barcelona hefur jafnframt verið orðað við Julian Alvarez og Joao Pedro. Þá geta Börsungar keypt Marcus Rashford frá Manchester United fyrir 26 milljónir punda eftir að hafa verið á láni hjá félaginu.
???? BREAKING: Barcelona reach an agreement in principle with Newcastle to sign Anthony Gordon. £70m plus bonuses.
— Ben Jacobs (@JacobsBen) May 27, 2026
Barcelona have pencilled in a medical for this week and anticipate the deal is formalised quickly.
Bayern expected to lose out despite also agreeing terms with… pic.twitter.com/lxYo0qPhWB




