West Ham United var í þessu að staðfesta kaup á Alphonse Areola sem lék með liðinu að láni frá PSG á síðustu leiktíð.
Areola varði mark West Ham í bikarleikjum og Evrópudeildinni þar sem Hamrarnir fóru alla leið í undanúrslit.
Hann veitir Lukasz Fabianski samkeppni um byrjunarliðssætið en Areola fékk aðeins að spila einn úrvalsdeildarleik á leiktíðinni.
Hinn 29 ára gamli Areola skrifar undir fimm ára samning við félagið og er annar leikmaðurinn sem kemur í sumar eftir Nayef Aguerd.
Areola er franskur, ættaður frá Filippseyjum, og á 3 A-landsleiki að baki fyrir Frakkland eftir að hafa verið aðalmarkvörður yngri landsliðanna.
West Ham er talið borga á milli 7 og 11 milljónir punda fyrir Areola.
Here to stay, @AreolaOfficiel 🧤 pic.twitter.com/tiraXyEAUV
— West Ham United (@WestHam) June 27, 2022