mán 27. júní 2022 10:24
Elvar Geir Magnússon
Besti leikmaður C-deildarinnar til Burnley (Staðfest)
Scott Twine.
Scott Twine.
Mynd: Getty Images
Besti leikmaður ensku C-deildarinnar er nýr liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá Burnley.

Miðjumaðurinn Scott Twine kemur frá MK Dons en hann er 22 ára og var valinn besti leikmaður League One á liðnu tímabili.

MK Dons tapaði fyrir Wycombe í undanúrslitum umspilsins.

Twine er fyrsti leikmaðurinn sem Vincent Kompany fær til félagsins síðan hann tók við stjórnartaumunum.

„Við erum hæstánægðir með að hafa fengið Scott til okkar. Hann er spennandi ungur leikmaður sem mun hjálpa okkur í að ná markmiðum okkar. Hann er leikmaður sem getur skorað mörk og haf áhrif á leiki," segir Kompany.

Burnley stefnir á því að komast strax aftur upp, eftir fall úr úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner