Lacroix til Chelsea - Newcastle í baráttuna um Nmecha

Lacroix er á leið til Chelsea

Mynd: EPA

Newcastle United villa fá Nmecha

Mynd: EPA

Newcastle ætlar ekki að selja Guimaraes

Mynd: EPA

Lacroix er á leið til Chelsea

Mynd: EPA

Chelsea er að ganga frá kaupum á Maxence Lacroix, Newcastle er komið í baráttuna um þýska landsliðsmanninn Felix Nmecha og um leið hafnað tilboði Arsenal í brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Maxence Lacroix (26), miðvörður Crystal Palace og franska landsliðsins, er á leið til Chelsea fyrir 47,4 milljónir punda.
(L'Equipe)
Newcastle United hefur bætt Felix Nmecha (24), miðjumanni Borussia Dortmund og þýska landsliðsins, á óskalistann fyrir sumargluggann. (Mail)
Þá hefur Newcastle hafnað 55 milljóna punda tilboði Englandsmeistara Arsenal í brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes (28). (ESPN)
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, ætlar að gera Antonin Kinsky (23), að aðalmarkverði sínum á næstu leiktíð. Tottenham er þá reiðubúið að selja ítalska markvörðinn Guglielmo Vicario (29).(Teamtalk)
Manchester United og Chelsea eru komin í kapphlaup við Arsenal um úrúgvæska vinstri bakvörðinn Maxi Araujo (26), sem er á mála hjá Sporting. (Record)
Ítalski hægri bakvörðurinn Marco Palestra (21), mun ganga frá félagaskiptum sínum til Chelsea frá Atalanta á næstu dögum eftir að hafa klárað læknisskoðun í Lundúnum. (Football Italia)
Enski sóknarmaðurinn Mason Greenwood (24), vill frekar ganga í raðir Roma en Fenerbahce og Al-Hilal. Roma ætlar að bjóða 43 milljónir punda í Greenwood. (Corriere dello Sport)
AC Milan hefur náð samkomulagi við Paris Saint-Germain um portúgalska sóknarmanninn Goncalo Ramos (25). Hann hefur þegar gengist undir læknisskoðun og verður dýrasti leikmaður í sögu Milan. (Gazzetta dello Sport)
Bandaríska félagið Atlanta United hefur spurst fyrir um spænska miðjumanninn Koke (34), sem er á mála hjá Atletico Madrid. (Marca)
Hollenska félagið Ajax hefur áhuga á því að fá markvörðinn Marc-Andre ter Stegen (34), frá Barcelona. (Mundo Deportivo)