Fotbolti.net
27.06.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tuchel: Félagaskipti Anderson hafa ekki truflað

Tuchel: Félagaskipti Anderson hafa ekki truflað
Canon

Mynd: EPA

Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson var tæpur fyrir leik Englands gegn Panama í lokaumferð riðlakeppninnar á HM í kvöld. Thomas Tuchel hefur hins vegar staðfest að miðjumaðurinn sé klár í slaginn.
Anderson er 23 ára gamall miðjumaður. Hann er á leið til Man City frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda.

Tuchel segir að félagaskiptin hafi ekki truflað Anderson í undirbúningi sínum fyrir leikinn.

„Það var engin truflun, engin læknisskoðun fyrir leikinn. Öll einbeiting er á bataferlinu hans og gera hann klárann fyrir æfingu. Engin truflun frá aðalatriðinu sem er leikurinn gegn Panama," sagði Tuchel.

„Við viljum vinna leikinn, vinna riðilinn. Við þurfum á hafa Elliot með rétt hugarfar. Sannleikurinn er sá að félagaskipti eru í gangi í fótboltaheiminum á meðan við erum að spila. Stór félagaskipti taka tíma. Við vitum að það er eitthvað að gerast á bakvið tjöldin. Við munum auðvelda félagaskiptin eftir leikinn, ekki fyrir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.