Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. júlí 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bandarískur framherji í Þór/KA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprettinn á Pepsi Max-deildinni. Liðið hefur samið við framherjann Shainu Ashouri og er hún komin með leikheimild með liðinu.

Shaina er fædd árið 1996 og er frá Colorado. Hún spilaði með háskólaliði Wyoming háskólans og samdi við Houston Dash haustið 2020. Shaina hefur spilað með varaliði Dash og lék einnig með króatíska liðinu ZNK Split síðasta haust.

Þór/KA tilkynnir um félagaskiptin með facebook-færslu. Í færslunni eru birt nokkur orð leikmannsins.

„Ég hef alltaf heyrt vel talað um landið og deildina hér."

Þór/KA á leik gegn Breiðabliki á morgun.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner