Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. júlí 2022 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Öllu til tjaldað í Róm - Þúsundir stuðningsmanna mættu á kynningu Dybala
Paulo Dybala var hæstánægður með kynninguna
Paulo Dybala var hæstánægður með kynninguna
Mynd: EPA
Argentínski sóknartengiliðurinn Paulo Dybala var kynntur fyrir stuðningsmönnum Roma við Palazzo della Civiltà Italiana í Róm í gærkvöldi en þar var öllu til tjaldað.

Dybala kom til Roma á frjálsri sölu frá Juventus á dögunum en sjálfur Francesco Totti bauð Dybala að taka treyjunúmerið hans, sem var hengt upp í rjáfur eftir að Totti hætti.

Argentínumaðurinn var fremur hógvær og neitaði boðinu, enda aðeins einn kóngur í Róm. Dybala mun spila í treyju númer 21 eins og hann gerði hjá Juventus fyrst um sinn.

Roma kynnti Dybala fyrir stuðningsmönnum í Róm í gær og var þar ákveðið að lýsa upp Colosseo Quadrato-bygginguna fyrir framan átta þúsund stuðningsmenn Roma.

Dybala var hálf klökkur er hann var kynntur en byggingin var lýst upp í rauðum og gulum lit með mynd af leikmanninum. Hægt er að sjá myndband af þessum gjörning hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner