27.07.26 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Ágúst tryggði Blikum mikilvæg þrjú stig

Ágúst Orri skoraði sigurmark Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri skoraði sigurmark Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik marði 1-0 sigur á ÍBV í 16. umferð Bestu deildar karla á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld.
Eyjamenn byrjuðu af krafti og Anton Ari Einarsson þurfti snemma að taka á honum stóra sínum þegar Vicente Valor reyndi á hann. Blikar færðu sig hins vegar smám saman framar á völlinn og náðu betri tökum á leiknum.
Þegar um hálftími var liðinn var Viggó Valgeirsson hársbreidd frá því að koma ÍBV yfir en skalli hans eftir aukaspyrnu hafnaði í stönginni.
Blikar voru líklegri til að brjóta ísinn undir lok fyrri hálfleiks. Sending Ágústs Orra Þorsteinssonar fór af varnarmanni og stefndi í markið en Ari í Haraldstovu Petersen náði að reka tána í boltann og bjarga á síðustu stundu.
Tréverkið þvældist svo fyrir í annað sinn fáeinum mínútum síðar. Kristinn Steindórsson fékk boltann inni í vítateignum, sneri laglega en þrumaði honum í þverslána.
Blikar voru fljótir að brjóta ísinn í síðari hálfleik. Ágúst Orri fékk boltann í þröngu færi og náði skoti sem Ari varði. Boltinn féll aftur fyrir fætur Ágústs sem stýrði honum í nærhornið.
Leikurinn opnaðist lítið eftir markið og það var ekki fyrr en á 77. mínútu sem Eyjamenn ógnuðu af alvöru. Pisco fékk boltann á hættulegum stað inni í vítateignum en stýrði honum rétt fram hjá.
Jöfnunarmarkið lét á sér standa og Blikar fögnuðu mikilvægum þremur stigum. Þeir eru í fjórða sæti með 29 stig og hafa tíu stiga forskot á næsta lið fyrir neðan. ÍBV situr í áttunda sæti með 16 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 16 | +13 | 34 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍA | 16 | -8 | 18 |
| 8 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 9 | Stjarnan | 16 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 16 | -11 | 13 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |