27.07.26 - 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Herða enn frekar á leiktöfum - Útileikmaður þarf að fara af velli ef markvörður meiðist

Mynd: EPA

Daniel Farke ásakaði Gianluigi Donnarumma um leiktöf á síðasta tímabili

Mynd: EPA

Fabian Hürzeler, stjóri Brighton, sakaði David Raya um að tefja leikinn fyrir taktískt leikhlé

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt að ný regla varðandi meiðsli markvarða verði prófuð á komandi tímabili.

TENGT EFNI
Ætla að koma í veg fyrir að aðhlynningar markvarða séu misnotaðar
IFAB, Alþjóðanefnd fótboltasambanda, hefur gefið ensku fótboltahreyfingunni grænt ljós á að prófa nýja reglu sem á að vinna gegn leiktöfum vegna meiðsla markvarða.
Reglan verður prófuð í atvinnumannadeildum karla og kvenna á Englandi, meðal annars í ensku úrvalsdeildinni, WSL-deildinni og neðri deildunum.
Þurfi markvörður að fá aðhlynningu verður þjálfari liðsins að velja einn útileikmann sem fer tafarlaust af velli. Hann má ekki koma aftur inn á fyrr en að minnsta kosti mínútu eftir að leikurinn hefst á ný.
Með þessu á að tryggja að markverðir sem meiðast fái áfram viðeigandi aðhlynningu án þess að lið geti nýtt leikstöðvunina sér til framdráttar.
Reglan gildir þó ekki ef brotið hefur verið á markverðinum og hann þarf strax aðhlynningu, ef hann rekst saman við samherja eða ef honum blæðir.
Enska fótboltahreyfingin, IFAB og aðrir hagsmunaaðilar munu fylgjast með tilrauninni út tímabilið og meta hvort hún bæti flæði leikja án þess að það komi niður á heilsu og öryggi leikmanna.
Reglan bætist við fleiri aðgerðir gegn leiktöfum. Á síðasta tímabili tóku gildi átta sekúndna tímamörk fyrir markverði til að koma boltanum aftur í leik.
Á komandi tímabili geta dómarar einnig gefið leikmönnum sýnilegt fimm sekúndna niðurtalningarmerki telji þeir þá tefja töku innkasts eða markspyrnu.
Þá verða tíu sekúndna tímamörk við skiptingar tekin upp í enska deildabikarnum. Sé leikmaður lengur að yfirgefa völlinn þarf varamaðurinn að bíða á hliðarlínunni í eina mínútu eftir að leikurinn hefst á ný.

There is a new rule coming to the Premier League for the 2026/27 season to stop goalkeeper tactical timeouts.
— Premier League (@premierleague) July 27, 2026