Fotbolti.net
27.09.13 - 20:41
Ívan Guðjón Baldursson

Óli Þórðar og Milos framlengja við Víking (Staðfest)

Óli Þórðar og Milos framlengja við Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Staðfest er að Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic haldi áfram sem þjálfarar karlaliðs Víkings Reykjavíkur.

Tvímenningunum hefur gengið vel við stjórnartaumana og komu liðinu upp í Pepsi-deild karla eftir ótrúlega spennandi toppbaráttu á lokasprett tímabilsins.
Ólafur var áður þjálfari Fylkis, Fram og ÍA. Hann gerði síðastnefnda liðið að Íslandsmeisturum árið 2001.

Milos var hins vegar leikmaður Víkings en hætti að spila fyrir tveimur árum, eftir sumarið 2011.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.