Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. september 2020 18:36
Aksentije Milisic
2. deild: Selfoss með mikilvægan sigur á KF
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 3 - 2 KF
0-1 Theodore Develan Wilson III ('31 )
1-1 Ingi Rafn Ingibergsson ('39 )
2-1 Þór Llorens Þórðarson ('44 )
3-1 Ingvi Rafn Óskarsson ('45 )
3-2 Oumar Diouck ('81 )

Rautt spjald: Gylfi Dagur Leifsson , Selfoss ('57)

Selfoss og KF áttust við í 2. deild karla og lauk leiknum með 3-2 sigri heimamanna.

Gestirnir frá Fjallabyggð komust yfir á 31. mínútu þegar Theodore Wilson skoraði en heimamenn svöruðu með þremur mörkum fyrir leikhlé. Ingi Rafn Ingibergsson, Þór Llorens Þórðarson og Ingvi Rafn Óskarson sáu um mörkin sem komu á sex mínútna kafla.

Gylfi Dagur Leifsson fékk rautt hjá heimamönnum þegar rúmur hálftími var til leiksloka. Markahrókurinn Oumar Diouck minnkaði muninn í eitt mark fyrir gestina þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.

Selfyssingar héldu út og náðu í þrjú mikilvæg stig. Liðið er núna með jafn mörg stig og Þróttur Vogum sem er í öðru sæti deildarinnar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner