Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 27. nóvember 2019 19:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jones neitaði leik sér til heiðurs - „Hverjir myndu mæta fyrir utan mömmu og pabba?"
Mynd: Getty Images
Phil Jones hefur verið í níu tímabil hjá Manchester United. Í febrúar skrifaði hann undir nýjan langtímasamning við félagið en neitaði einni af klásúlunum sem honum var boðið.

Það er hefð hjá United að leikmenn geti beðið um góðgerðarleik sér til heiðurs ef þeir eru tíu ár eða fleiri hjá félaginu.

Jones ætlar sér ekki að nýta sér þetta ákvæði þar sem hann hefur tekið eftir dvínandi vinsældum sínum meðal stuðningsmanna félagsins.

„Fyrir utan mömmu og pabba, hverjir aðrir myndu mæta?" er það sem Jones á að hafa sagt þegar honum var sagt frá þessu ákvæði.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner