Nemanja Matic, miðjumaður Manchester United, lét sig hverfa af æfingu liðsins í dag eftir einungis 24 mínútur. Enskir fjölmiðlar greina frá þessu.
Þetta gerðist aðeins örfáum dögum eftir að Serbinn sleppti því að mæta á árlega Gala kvöldverðinn hjá Manchester United. Í staðinn fór hann út að borða með framherja Wolves, Patrick Cutrone.
Matic er talinn vera á förum frá liðinu en á dögunum svaraði hann Instagram pósti um það að Jose Mourinho væri að reyna fá hann til Tottenham.
Matic hefur aðeins byrjað tvo leiki hjá United á þessu tímabili og hefur Inter Milan verið mikið orðað við leikmanninn.
Athugasemdir