Rio Ferdinand, sparkspekingur og fyrrverandi leikmaður Manchester United, er mjög hrifinn af Bernardo Silva, leikmanni Manchester City.
Bernardo Silva hefur spilað frábærlega á þessari leiktíð og var hann öflugur í góðum sigri Man City gegn PSG í miðri viku.
Hann átti frábæra stoðsendingu á Gabriel Jesus í sigurmarki City og þá spilaði hann allan leikinn án þess að klúðra á einni einustu sendingu.
„Eftir Mohamed Salah, þá held ég að Bernardo Silva sé besti leikmaður deildarinnar. Hann hefur verið það góður. Að mínu mati er þetta magnaður leikmaður," sagði Ferdinand um Portúgalann.
Silva var ekki langt frá því að yfirgefa City fyrir þetta tímabil en sem betur fer fyrir City þá gerðist það ekki. Hann hefur spilað frábærlega það sem af er tímabili.
Manchester City mætir West Ham United í ensku úrvalsdeildinni á morgun klukkan 14.
Athugasemdir