Fotbolti.net
27.11.26 - 11:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eiður í framkvæmdastjórastarf hjá Þór (Staðfest)

Eiður í framkvæmdastjórastarf hjá Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Benedikt Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Þórs.

Um er að ræða nýja stöðu hjá knattspyrnudeildinni og mun Eiður hafa yfirumsjón með öllu starfi deildarinnar með sérstakri áherslu á meistaraflokksliðin og umgjörð þeirra.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Þórs, thorsport.is.
Breytingar í kortunum hjá Þór
TENGT EFNI

Breytingar í kortunum hjá Þór

Eiður samdi við Þór haustið 2025 og var aðstoðarþjálfari karlaliðsins síðasta sumar ásamt því að vera yfirmaður leikmannaþróunar. Hann stígur nú frá því starfi og færir sig á skrifstofuna.

Eiður var aðstoðarmaður Sigga Höskulds sem er aðalþjálfari Þórsliðsins. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net munu Þórsarar horfa í nærumhverfið í ráðningu á nýjum aðstoðarþjálfara.

Úr frétt á heimasíðu Þórs
Eiður er 35 ára gamall og hefur mikla reynslu af þjálfun á efsta stigi á Íslandi. Hann er með UEFA Pro þjálfaragráðuna auk þess að hafa lokið Sports Management frá Johan Cruyff Institute í Barcelona.

Umsvif knattspyrnudeildar hafa aukist töluvert á undanförnum árum og er ráðningin á Eiði liður í að mæta þeim áskorunum sem því fylgja. Að mati deildarinnar er um að ræða löngu tímabært skref og væntum við mikils af Eiði í starfinu.

Heimild: Thorsport

Eiður í framkvæmdastjórastarf hjá Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Þór

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.