Elmar Dan aðstoðar Hadda með KA (Staðfest)

Elmar Dan í leik með KA á sínum tíma

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Elmar Dan í leik með KA á sínum tíma

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Elmar Dan Sigþórsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari KA. Elmar þekkir vel til hjá félaginu.
Hann er uppalinn hjá KA og lék með liðinu frá 2002-2004 áður en hann snéri aftur árið 2007 en þá hafði hann spilað með Víkingum og Fjarðabyggð. Hann spilaði nokkur ár í Noregi áður en hann lauk ferlinum heima í gulu treyjunni árið 2012.
Hann hefur setið í stjórn KA undanfarin ár en sat þjálfaranámskeið KSÍ í vetur og hyggst mennta sig frekar á því sviði.
„Það er afar ánægjulegt að fá Elmar inn í þjálfarateymið enda býr hann yfir gífurlegri reynslu auk þess sem hann þekkir félagið út og inn. Við væntum því þess að Elmar muni verða öflugur fyrir félagið í þjálfaraúlpunni og bjóðum hann velkominn í teymið," segir í tilkynningu frá KA.
Frábærar fréttir! Elmar Dan Sigþórsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks KA í knattspyrnu! #LifiFyrirKA https://t.co/DrLfoL6Ph5 pic.twitter.com/LdRM4ORjBU
— KA (@KAakureyri) December 27, 2023






