Franko Lalic áfram á Dalvík (Staðfest)

Lalic í leik með Þrótti árið 2021

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lalic í leik með Þrótti árið 2021

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Franko Lalic hefur skrifað undir nýjan samning við Dalvík/Reyni og mun því taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Lalic er Króati og kom hingað til lands árið 2019 og spilaði með Víkingi Ólafsvík í næst efstu deild. Árið 2020 gekk hann til liðs við Þrótt Reykjavík og spilaði í tvö tímabil.
Hann gekk til liðs við Dalvík/Reyni um mitt síðasta tímabil og spilaði átta leiki með liðinu sem stóð uppi sem sigurvegari í 2. deildinni og mun því spila í Lengjudeildinni næsta sumar.
„Franko kom til okkar á miðju tímabili í sumar og stóð sig frábærlega því erum við virkilega ánægðir með að halda honum í okkar búðum," segir í tilkynningu frá félaginu.






