Olise velur Man Utd framyfir Chelsea - Barátta um Alonso


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images

Slúðurpakki dagsins, tekinn saman af BBC, er kominn í hús.
Chelsea hefur áhuga á að fá Michael Olise leikmann Crystal Palace ísumar en þessi 22 ára gamli franski vængmaður vill frekar fara til Man Utd. (Football.London)
Liverpool mun fá samkeppni í leit sinni að nýjum stjóra þegar Jurgen Klopp yfirgefur félagið í sumar. Bayern Munchen vill fá Xabi Alonso og Roberto de Zerbi er undir smásjá Man Utd ef félagið rekur Erik ten Hag. (Telegraph)
Forráðamenn Bayer Leverkusen eru bjartsýnir að Alonso verði áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga frá hans gamla félagi í Liverpool. (Sky Þýskaland)
Barcelona hefur einnig áhuga á De Zerbi eftir að Xavi tilkynnti að hann muni hætta með spænska stórveldið í sumar. (Fabrizio Romano)
Burnley hefur gert 10.2 milljón punda tilboð í Maxime Esteve 21 árs gamlan miðvöðr Montpellier. (Mail)
Everton íhugar að fá Said Benrahma, 28, á láni frá West Ham. (HITC)
Ef Benrahma yfirgefur West Ham í janúar mun félagið reyna að fá Jonathan Rowe, 20, frá Norwich. (Talksport)
Nottinham Forest, West Ham og Fulham vilja fá Trevoh Chalobah, 24, frá Chelsea áður en janúarglugginn lokar. (Football Insider)
Brentford, Feyenoord og Leeds hafa áhuga á Conor Roberts, 28, bakverði Burnley. (Mail)
Lyon hefur enn áhuga á Pierre-Emile Hojbjerg, 28, miðjumanni Tottenham og Arnaut Danjuma, 26, framherja Villarreal sem er á láni hjá Everton. (L'Equipe)
Jose Mourinho var í viðræðum við sádí arabíska liðið Al-Qadsiah í sumar áður en hann var rekinn frá Roma í þessum mánuði. Napoli vill fá hann til að taka verið af Walter Mazzarri en Newcastle er ekki meðal félaga sem er á eftir honum. (Mirror)
Chelsea hefur hafnað tilboði frá ónefndu stórliði í úrvalsdeildinni í Armando Broja, 22. Chelsea er tilbúið að leyfa honum að fara fyrir 35 milljónir punda en Fulham, West Ham, Wolves, Aston Villa og Crystal Palace hafa sýnt honum áhuga. (Teamtalk)
Leicester hefur gert lánstilboð í Stefano Sensi, 28, miðjumann Inter með ákvæði í samningnum um að geta keypt hann ef liðið tryggir sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir næsta tíambil. (Gianluca di Marzio)
Sádí-arabíska liðið Al-Shabab hefur enn áhuga á Miguel Almiron, 29, vængmanni Newcastle. (Mail)
Nottingham Forest er að vinna í því að fá Peter Gulasci, 33, markvörð RB Leipzig. (Fabrizio Romano)
Hull er nálægt því að næla í Abdulkadir Omur, 24, miðjumann Trabzonspor fyrir 4 milljónir punda. (Hull Daily Mail)
Leeds hefur gert lánstilboð í Ben Godrfrey, 26, varnarmann Everton. (Football Insider)
Swansea er nálægt því að krækja í hinn 27 ára gamla Brasilíumann, Ronald, frá Gremio. (Wales Online)


Mynd: EPA




