Virgil van Dijk fyrirliði Liverpool er yfir sig hrifinn af samherja sínum hjá Liverpool og hollenska landsliðinu, miðjumanninum Ryan Gravenberch.
Gravenberch er aðeins 22 ára gamall en er orðinn gríðarlega mikilvægur leikmaður á miðjunni hjá Liverpool eftir að hafa verið keyptur til félagsins fyrir einu og hálfu ári síðan.
Gravenberch hefur byrjað alla deildarleiki Liverpool undir stjórn Arne Slot eftir að Jürgen Klopp aðlagaði hann hægt og rólega að byrjunarliðinu á síðustu leiktíð.
„Hann spilaði ekki jafn mikið á síðustu leiktíð en gæðin hans voru augljós og hann gerði vel að halda hausnum niðri og leggja mikla vinnu á sig. Það er að skila sér núna. Hann er kominn með aukið sjálfstraust og nýtur trausts frá þjálfaranum, hann hefur verið frábær fyrir okkur á þessu tímabili. Hann hefur hrifið mig upp úr skónum," sagði Van Dijk í viðtali á vefsíðu Liverpool í gær.
„Hann er ennþá ungur strákur en er að verða að manni. Hann er með frábært hugarfar jafnt innan sem utan vallar og það er ótrúlega mikilvægur þáttur ef þú vilt vera leikmaður í heimsklassa.
„Ryan er í heimsklassa og getur bara orðið betri með tímanum. Hann er ótrúlega áreiðanlegur og hefur nánast verið fullkominn á tímabilinu. Ég er stoltur af honum. Hann er lífsnauðsynlegur fyrir þetta lið."
Athugasemdir