Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Var ekki ýtt í burtu frá KR heldur taldi ég þetta best fyrir minn feril"
Lengjudeildin
'HK sýndi mér áhuga sem ég gat ekki horft framhjá'
'HK sýndi mér áhuga sem ég gat ekki horft framhjá'
Mynd: HK
Hjálpar ungum KR-ingi í treyjuna.
Hjálpar ungum KR-ingi í treyjuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Vissulega lenti ég í mótlæti sem verður ekkert annað en gott veganesti fyrir mig sem leikmann hjá HK'
'Vissulega lenti ég í mótlæti sem verður ekkert annað en gott veganesti fyrir mig sem leikmann hjá HK'
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Rúrik Gunnarsson gekk í raðir HK í vetur en hann var keyptur frá KR þar sem hann hafði verið síðustu ár. Rúrik fór í KR frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2022 og lék með venslaliðinu KV fyrsta sumarið sitt í Vesturbænum.

Fyrri hlutann 2023 var hann í kringum meistaraflokk KR og lék þrjá leiki, seinni hlutann var hann svo hjá Aftureldingu á láni. Á síðasta tímabili lék hann svo í 14 leikjum með KR.

Rúrik er fæddur árið 2005, verður tvítugur í mars og á að baki 12 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann er miðjumaður en lék sem bakvörður hjá KR. Hann er núna kominn í Kórinn þar sem hann skrifar undir þriggja ára samning. Hann ræddi við Fótbolta.net um KR, HK og félagaskiptin.

„Ég er virkilega sáttur að vera kominn yfir í HK. Það er stór klúbbur með mikinn metnað og hrikalega spenntur fyrir sumrinu. Ég taldi mikilvægt fyrir mig sem næsta skref að fá stærra hlutverk í ungu og metnaðarfullu liði með skýra stefnu," segir Rúrik.

Hann skrifaði undir nýjan samning við KR síðasta vor. Fékkstu einhver skilaboð frá KR að þú mættir skoða aðra kosti?

„Ég var nýbúinn að skrifa undir þriggja ára samning við KR en fótboltinn breytist hratt. Mér var ekki ýtt í burtu frá KR heldur taldi ég þetta best fyrir minn feril. HK sýndi mér áhuga sem ég gat ekki horft framhjá."

Hvað er mest heillandi við HK?
„Hemmi er spennandi þjálfari sem hefur trú á mér og sem ég get mikið lært af innan sem utan vallar. Hópurinn er góður með fullt ungum og efnilegum leikmönnum í bland við eldri."

„Ég þekkti svo nokkra leikmenn áður en ég fór til HK t.d. Kristján Snæ og Tuma sem ég hef verið áður með í yngri landsliðum."


Ekkert annað en gott veganesti
Hvernig horfir Rúrik til baka á tímann hjá KR?

„Ég horfi á minn tíma hjá KR með miklu þakklæti. Lærði helling, spilaði með mörgum góðum leikmönnum og átti margar góðar stundir. Vissulega lenti ég í mótlæti sem verður ekkert annað en gott veganesti fyrir mig sem leikmann hjá HK."

Vill skipta máli fyrir liðið og vinna Lengjudeildina
Hvert langar Rúrik að afreka með HK?

„Ég ætla mér að skipta máli fyrir liðið, vera fastamaður í liðinu og gera aðra betri í kringum mig. Vinna deildina og vera hluti af þessari spennandi vegferð sem HK er í."

Önnur félög höfðu áhuga
Voru fleiri félögsem höfðu áhuga?

„Það voru nokkur lið í báðum deildum sem sýndu mér áhuga en HK var besta niðurstaðan fyrir mig," segir Rúrik.
Athugasemdir
banner
banner
banner