Valur Reykjalín Þrastarson er genginn í raðir Hauka og mun leika með liðinu næstu tvö tímabilin.
Valur kemur frá KF þar sem hann var hluti af liðinu sem varð í öðru sæti 3. deildar síðasta sumar. Haukar féllu úr næstefstu deild síðasta sumar og mætir Valur því sínum fyrrum samherjum í KF á komandi sumri.
Valur er uppallinn hjá KF en hann söðlaði um og lék með Val árið 2018. Valur getur leyst bæði hægri og vinstri kantstöðurnar.

Af Haukar.is:
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Val og bindur miklar vonir við hann á komandi tímabili og bjóðum hann velkominn á Ásvelli.
Athugasemdir