Sagt var frá því í hlaðvarpsþættinum Dr. Football að KR væri að bera víurnar í leikmann Fram.
Haraldur Einar Ásgrímsson er tvítugur vinstri bakvörður sem skoraði eitt mark í nítján deildarleikjum á síðasta tímabili. Fram endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar.
Samkvæmt frásögn þeirra Kristjáns Óla Sigurðssonar og Hjörvars Hafliðasonar í þættinum eru KR-ingar að skoða að fá Harald í sínar raðir.
Haraldur er uppalinn hjá Álftanesi en lék einnig með Haukum og Fram í yngri flokkunum.

Fyrsta Svansvottaða hlaðvarpið. Við prentum út handrit og geymum ekki hlutina í skýi sem eru vistuð á hörðum diskum sem framleidd eru í verksmiðjum knúnum áfram af kjarnorku og brúnkolum. Pappír má endurnýta en það tekur enginn til í skýinu. https://t.co/VfHYJ9IFSM
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) February 26, 2021
Athugasemdir