Gríðarlega mikill heiður að vera valinn í U21 landsliðið
Auglýsing

Logi Hrafn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með U19 í október.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Logi Hrafn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líst hrikalega vel á að vera búinn að skrifa undir, vonandi eru spennandi tímar framundan og vonandi náum við góðum árangri í sumar," sagði Logi Hrafn Róbertsson, leikmaður FH, sem framlengdi í dag samning sinn við félagið út tímabilið 2024.
Hann er sautján ára gamall og hefur þegar spilað nítján leiki í efstu deild og þrettán leiki fyrir yngri landsliðin.

„Þessar viðræður tóku ekki langan tíma, gekk frekar fljótt fyrir sig."
Logi Hrafn kom virkilega vel inn í lið FH á síðasta tímabili þegar talsvert var liðið á móti eftir að hafa mikið verið á varamannabekknum í byrjun tímabils.
„Nei, [ég var ekki orðinn óþreyjufullur]. Ég var bara rólegur og reyndi að standa mig vel á æfingum. Ég vissi að ef ég myndi gera það og spila vel með 2. flokknum þá myndi sénsinn koma. Að lokum kom hann og ég nýtti mér hann."
Logi er djúpur miðjumaður en getur einnig spilað sem miðvörður. „Mér finnst skemmtilegast að spila djúpur á miðju en ég get líka leyst hafsentinn, hef verið að spila þar með yngri landsliðunum. Ég spila bara þar sem þjálfarinn setur mig á völlinn."
Ertu með einhverja sérstaka fyrirmynd? „Kannski bara Davíð [Þór Viðarsson], þegar hann var að spila. Ég myndi segja að hann hafi verið góð fyrirmynd. Ég lærði mikið af honum þrátt fyrir að hafa ekki spilað með honum en með því að horfa á hann þá lærði maður."
Í vetur var Logi Hrafn Róbertsson valinn í U21 árs landsliðið og fór með liðinu í verkefnið í nóvember.
„Það var gríðarlega mikill heiður. Það var gott að kynnast umhverfinu sem er í U21 og ég kunni vel að meta þetta, hrikalega góð reynsla."
„Ég held það sé góður hlutur að geta leyst nokkrar stöður, þá fær maður líka sýn hvernig það er að spila bæði sem hafsent og miðjumaður," sagði Logi aðspurður út í að spila aðra stöðu í yngri landsliðunum og með FH.
Í viðtalinu, sem má sjá efst í fréttinni, var hann einnig spurður út í áhuga erlendra félaga.