Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 28. mars 2021 08:00
Aksentije Milisic
Muller um Musiala: Ekkert enskt blóð í honum!
Thomas Muller, leikmaður Bayern Munchen, hefur vísað þeim ásökum á bug að Þjóðverjar hafi stolið Jamal Musiala frá Englandi.

Muller grínaðist þá með að hann hafi skoðað blóð Musiala og ekki séð neitt enskt í því.

Musiala er einn efnilegasti leikmaður heims en hann hafði spilað fyrir yngri landslið Englands. Hann ólst upp í London en á dögunum tók hann sú ákvörðun að velja að spila fyrir Þýskaland og kom hann inn á í sínum fyrsta landsleik gegn Íslandi fyrr í vikunni.

Liðsfélagi hans hjá Bayern, Muller, tjáði sig um málið í fjölmiðlum.

„Ég veit ekki hvort við stálum honum," sagði Muller léttur.

„Ég skoðaði blóðlínu hans og það var ekkert enskt þarna! Við erum ánægðir með að hann valdi Þýskaland."

Hinn 18 ára gamli Masiala er yngsti leikmaðurinn sem hefur spilað fyrir Bayern og sá yngsti sem hefur skorað fyrir liðið í deildinni og í Meistaradeild Evrópu.


Athugasemdir
banner
banner
banner