Fotbolti.net
28.04.16 - 14:35
Magnús Már Einarsson

Nikolaj Hansen frá keppni í þrjár vikur

Nikolaj meiddist gegn FH.

Nikolaj meiddist gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Nikolaj Hansen, framherji Vals, missir af fystu umferðunum í Pepsi-deildinni vegna meiðsla.

Nikolaj tognaði á ökkla gegn FH í Meistarakeppni KSÍ í vikunni.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, sagði í samtali við Fótbolta.net að Nikolaj verði að hámrki frá í þrjár vikur.

Hann missir því af leikjunum gegn Fjölni og Víkingi Ólafsvík í fyrstu tveimur umferðunum sem og mögulega leikjunum gegn Fylki og Víkingi R. í 3 og 4. umferð þann 12 og 17. maí.
Valsmenn fengu Björgvin Stefánsson á láni frá Haukum í vikunni en Ólafur segist ekki hafa beint verið í framherjaleit.

„Nei, við vorum ekki að því. Þetta kom óvænt upp í hendurnar á okkur og mér fannst við ekki geta sleppt því,\" sagði Óli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.