28.05.13 - 17:03
Magnús Már Einarsson
Kolo Toure til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur staðfest að varnarmaðurinn Kolo Toure muni ganga í raðir félagsins í sumar.
Toure mun ganga til liðs við Liverpool 1. júlí næstkomandi þegar samningur hans við Manchester City rennur út.
Hinn 32 ára gamli Toure lék með Arsenal frá 2002 til ársins 2009 þegar Manchester City fékk hann í sínar raðir.
Toure hefur hins vegar ekki spilað mikið með Manchester City undanfarið en hann kom einungis við sögu í 18 leikjum á nýliðnu tímabili.
Liverpool hefur verið í leit að varnarmanni síðan Jamie Carragher tilkynnti að hann muni leggja skóna á hilluna í sumar eftir langan feril hjá félaginu.

Heimild: Heimasíða Liverpool