Fotbolti.net
28.05.13 - 18:50
Brynjar Ingi Erluson

Ricardo Carvalho til AS Monaco (Staðfest)

Ricardo Carvalho til AS Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska peningaveldið AS Monaco hefur fengið portúgalska varnarmanninn Ricardo Carvalho frá Real Madrid, en þetta kemur fram á vefsíðu franska liðsins í dag.
Carvalho, sem er 35 ára gamall, hefur leikið með Real Madrid frá árinu 2010, en þá kom hann frá Chelsea.

Jose Mourinho, þjálfari liðsins, fer frá félaginu í sumar og ákvað Carvalho að gera slíkt hið sama, en hann hefur samið við franska stórliðið AS Monaco.

Hann gerir eins árs samning við félagið og fetar nú í fótspor Radamel Falcao, James Rodriguez og Joao Moutinho.

,,Ég er í skýjunum með að ganga til liðs við Monaco og vera partur af þessu ævintýri,\" sagði Carvalho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.