Stjarnan og Þór/KA eru komin á fram í 8 liða úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigra í dag.
Í Hafnarfirði fékk FH lið Stjörnunnar í heimsókn. Gestirnir leika í Bestu deildinni en FH í Lengjudeildinni. Stjörnukonur voru með nokkuð mikla yfirburði í leiknum en gekk illa að skapa sér færi.
Það var ekki fyrr en á 83. mínútu sem Arna Dís Arnþórsdóttir skoraði eftir sendingu frá Jasmín Erlu Ingadóttur og þar við sat.
Bestu deildarlið Þór/KA fékk Lengjudeildarlið Hauka í heimsókn á Akureyri í dag. Það var aldrei spurning hver myndi fara með sigur úr bítum þar en Þór/KA sigraði 6-0.
FH 0 - 1 Stjarnan
0-1 Arna Dís Arnþórsdóttir ('83 )
Þór/KA 6-0 Haukar
1-0 Tiffany McCarty
2-0 Andrea Mist Pálsdóttir
3-0 Margrét Árnadóttir
4-0 Sandra María Jessen
5-0 Hulda Ósk Jónsdóttir
6-0 Vigdís Edda Friðriksdóttir
1-0 Tiffany McCarty
2-0 Andrea Mist Pálsdóttir
3-0 Margrét Árnadóttir
4-0 Sandra María Jessen
5-0 Hulda Ósk Jónsdóttir
6-0 Vigdís Edda Friðriksdóttir
Athugasemdir