Aðeins eitt mark hefur verið skorað beint úr aukaspyrnu í Bestu deildinni nú þegar 50 leikir hafa verið spilaðir í deildinni.
Gífurlegur munur er á Bestu deildinni ef hún er borin saman við Lengjudeildina en eftir því sem Fótbolti.net kemst næst hafa komið sjö mörk úr fyrstu sex umferðum Lengjudeildarinnar.
Alls hafa 36 leikir verið spilaðir sem er fjórtán leikjum minna en í Bestu deildinni.

Róbert Elís Hlynsson skoraði eina aukaspyrnumark Bestu deildarinnar það sem af er sumri í 5-1 tapi ÍBV gegn Fram.
Elmar Kári Cogic og Emil Nói Sigurhjartarson hafa báðir skorað tvö mörk beint úr aukaspyrnum í fyrstu sex umferðum Lengjudeildarinnar. Þá skoraði Elmar jafnframt mark beint úr aukaspyrnu gegn Njarðvík í Mjólkurbikarnum.
Aukaspyrnumörkin í Lengjudeildinni:
Kári Kristjánsson (Þróttur R.) gegn Aftureldingu
Sigurður Egill Lárusson (Þróttur R.) gegn Aftureldingu
Ibrahima Balde (Vestri) gegn HK
Elmar Kári Cogic (Afturelding) gegn Gróttu
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) gegn Grindavík
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) gegn Þrótti
Elmar Kári Cogic (Afturelding) gegn ÍR
Uppfært 18:16
Í upprunalegri frétt stóð að ekkert mark hafi verið skorað beint úr aukaspyrnu í Bestu deildinni í upphafi sumars.