Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gordon búinn í læknisskoðun hjá Barcelona
Mynd: EPA
Anthony Gordon hefur lokið læknisskoðun hjá Barcelona en hann er staddur í Barcelona ástamt fjölskyldunni og umboðsmönnum sínum.

Það verður síðan gengið frá öllu á morgun og hann mun skrifa undir fimm ára samning við félagið.

Barcelona náði samkomulagi við Newcastle um kaupverð upp á um 70 milljónir punda og félagið vann Bayern Munchen í baráttunni um enska sóknarmanninn.

Barcelona ætlar að fara í viðræður við Atletico Madrid um kaup á Julian Alvarez þegar félagið hefur staðfest kaupin á Gordon.
Slapp
banner
banner
banner