Inigo Perez er hættur sem stjóri spænska liðsins Rayo Vallecano en hann er að öllum líkindum að taka við Villarreal.
Vallecano tapaði gegn Crystal Palace í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í gær en Perez hefur stýrt liðinu í tvö og hálft árið.
Vallecano tapaði gegn Crystal Palace í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í gær en Perez hefur stýrt liðinu í tvö og hálft árið.
„Hann er frábær þjálfari og frábær manneskja, ég hefði viljað halda honum til eilífðar. Ég hefði viljað fá hann í verkefni eins og Diego Simeone hjá Atletico Madrid," segir Raul Martin Presa, forseti Valladolid.
Villarreal hafnaði í þriðja sæti La Liga undir stjórn Marcelino og mun Perez því stýra liðinu í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

