Argentínumaðurinn Angel Di Maria var í afar athyglisverðu viðtali hjá BBC þar sem hann tjáði sig um erfiða tíma hjá Man Utd á sínum tíma.
Di Maria gekk til liðs við Man Utd árið 2014 frá Real Madrid og átti mjög erfitt uppdráttar. Hann kennir Louis Van Gaal, þáverandi stjóra félagsins, um það.
Di Maria gekk til liðs við Man Utd árið 2014 frá Real Madrid og átti mjög erfitt uppdráttar. Hann kennir Louis Van Gaal, þáverandi stjóra félagsins, um það.
„Þetta byrjaði mjög vel. Svo byrjuðu vandamál með Van Gaal og þá fór allt í vaskinn. Skyndilega vorum við á mörgum fundum um allt það ranga sem ég gerði á vellinum. Hann sýndi mér aldrei það góða sem ég gerði, bara það slæma, aftur og aftur. Að lokum varð ég leiður," sagði Di Maria.
„Lífið var allt öðruvísi. Það var dimmt mjög snemma og svo kólnaði. Þetta var eins og snjóbolti, það var líka brotist inn hjá mér. Þegar allt þetta gerist, þú ert ekki að spila, hlutirnir ganga ekki upp og maður er að upplifa vandræði innan félagsins hefur það mikil áhrif á mann. Það varð til þess að ég hataði að vera þarna."
Van Gaal hefur sagt frá því að það hafi verið ákvörðun félagsins að fá Argentínumanninn og það hafi verið röng ákvörðun.


