Það gekk mikið á þegar Kormákur/Hvöt lagði Víking Ólafsvík af velli í 32-liða úrslitum Gatorade bikar Fótbolta.net í gær.
Veðrið setti strik í reikninginn en það kemur fram á Aðdáendasíðu Kormáks á Facebook að „einhvers konar frostregn" hafi tekið á móti aðdáendum.
Veðrið setti strik í reikninginn en það kemur fram á Aðdáendasíðu Kormáks á Facebook að „einhvers konar frostregn" hafi tekið á móti aðdáendum.
Þá sauð upp úr í leikslok en Kormákur/Hvöt vann 3-2 eftir framlengan leik. Það kemur fram á aðdáendasíðu Kormáks að Manuel Ferriol Martínez hafi orðið fyir líkamsárás leikmanns gestanna. Þá hrækti annar leikmaður Víkings á Guzman Díaz Scarone, hetju Kormáks/Hvatar.
„Þá má þess geta að í hálfleik þurfti að ganga á milli bekkjarmanna Víkinga og dómaratríósins, sem þorði ekki út úr húsi eftir leik vegna óargagangsins. Svei. Við látum ekki þessa vitleysu skemma sigurgleðina en treystum á að hinn langi armur KSÍ-laganna taki málið til skoðunar," segir á aðdáendasíðu Kormáks.


