Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Iraola í viðræðum við Leverkusen
Mynd: EPA
Andoni Iraola er einn heitasti bitinn á þjálfaramarkaðnum í dag en hann er að hætta sem stjóri Bournemouth.

Sky í Þýskalandi greinir frá því að hann sé í viðræðum við Leverkusen.

Milan og Crystal Palace hafa áhuga á honum en eins og staðan er núna lítur ekki út fyrir að hann taki við hjá hvorugu þessara félaga.

Sky í Þýskalandi segir að Leverkusen vonist til að ná samkomulagi við hann eins fljótt og hægt er til að vinna fyrrnefnd félög í baráttunni.

Leverkusen var í viðræðum við Filipe Luis, fyrrum leikmann Atletico og Chelsea, en hann er sagður vera taka við Mónakó. Hann stýrði brasilíska félaginu Flamengo frá 2024 þar til hann var rekinn í mars á þessu ári.
Slapp
banner
banner