Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram á laugardaginn og hefst klukkan 16. Frönsku meistararnir í PSG mæta Englandsmeisturum Arsenal í Búdapest í Ungverjalandi.
UEFA hefur sett saman líkleg byrjunarlið. Bæði lið eru að kljást við meiðsli en Ousmane Dembele og Achraf Hakimi eru tæpir hjá PSG. Þá mun Ben White missa af leiknum og Noni Madueke og Jurrien Timber eru tæpir hjá Arsenal.
PSG er ríkjandi meistari en Arsenal vonast til að vinna sinn fyrsta Meistaradeildartitil.

PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Willian Pacho, Nuno Mendes; Zaïre-Emery, Vitinha, João Neves; Doué, Dembélé, Kvaratskhelia
Arsenal: Raya; Mosquera, Saliba, Gabriel, Calafiori; Rice, Lewis-Skelly, Ødegaard; Saka, Gyökeres, Trossard