Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, gæti snúið aftur í félagsliðaboltann eftir HM. BBC greinir frá því að hann hafi rætt við AC Milan.
Pochettino er fyrrum stjóri Tottenham og Chelsea en hann tók við bandaríska landsliðinu eftir að hafa stýrt Chelsea tímabilið 2023/24.
Hann mun stýra Bandaríkjunum á HM í heimalandinu en samningur hans við bandaríska sambandið er út mótið.
Milan mistókst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni og Max Allegri var látinn taka pokann sinn.



