Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 17:00
Elvar Geir Magnússon
Þrír í banni í umferðinni eftir rauð spjöld
Hólmar Örn Eyjólfsson fyrirliði Vals.
Hólmar Örn Eyjólfsson fyrirliði Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Tveir leikir verða í 9. umferð Bestu deildarinnar á morgun, föstudag, en umferðinni lýkur svo með fjórum leikjum á sunnudaginn.

Þrír leikmenn verða í banni vegna rauðra spjalda.

Sóknarmaðurinn Sverrir Páll Hjaltested í FH fékk rautt í 5-0 tapinu gegn Víkingi og verður ekki með gegn ÍA í Krikanum annað kvöld.

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, verður í banni þegar Valur fær Íslandsmeistara Víkings í heimsókn á sunnudag en hann fékk tvö gul spjöld og þar með rautt þegar Valur tapaði gegn KR í vikunni.

Þá verður markvörðurinn Marcel Zapytowski hjá ÍBV í banni gegn Keflavík. Zapytowski fékk rautt spjald í 2-2 jafnteflinu gegn ÍA þrátt fyrir að hafa ekki spilað í leiknum. Hann fór út úr boðvangnum til að tefja í lok leiksins.

Ari i Haraldstovu hefur spilað í marki ÍBV síðustu leiki eftir að Zapytowski missti sæti sitt.

föstudagur 29. maí
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Fram-Breiðablik (Lambhagavöllurinn)

sunnudagur 31. maí
17:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-KA (Meistaravellir)
17:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 9 7 1 1 33 - 20 +13 22
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp
banner