Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 28. júní 2022 14:12
Elvar Geir Magnússon
Binni Gests samdi við Þrótt Vogum út næsta ár (Staðfest)
Lengjudeildin
Brynjar Gestsson.
Brynjar Gestsson.
Mynd: Þróttur Vogum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er búið að ganga frá því að ég verð þjálfari út þetta tímabil og það næsta," sagði Brynjar Gestsson, þjálfari Þróttar Vogum, við Fótbolta.net eftir naumt tap gegn Gróttu í gær.

Brynjar tók við liðinu til bráðabirgða eftir að Eiður Ben var látinn fara en búið er að semja við hann um að vera þjálfari til frambúðar. Hann hefur gert samkomulag út næsta tímabil.

Þróttur er í neðsta sæti Lengjudeildarinnar með aðeins tvö stig. Varnarleikurinn hefur lagast hjá liðinu að undanförnu en það hefur hinsvegar aðeins skorað tvö mörk og er stefnan að styrkja sóknina í glugganum.

„Þeir sem eru hérna fyrir eru ekki að skora. Þegar þú ert búinn að spila sjö leiki og skora tvö mörk þá er eitthvað verulega mikið að," sagði Brynjar eftir leik í gær. Hann segir þó ljóst að viljinn og krafturinn sé til staðar hjá sínu liði.

„Hjartað er til staðar, svo sannarlega. Menn eru að leggja allt í þetta."

Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar Vogum, sagði við Fótbolta.net að stefnan væri að finna styrkleika félagsins og endurheimta það sem hefur einkennt það í uppgangnum síðustu ár, innan vallar sem utan.

„Félagið tók þá ákvörðun að ráða Binna sem aðalþjálfara út næsta ár og var leikmönnum tilkynnt það eftir fyrsta leik í landsleikjahléi. Við erum að horfa lengra en eitt tímabil og ætlum okkur að byggja upp gott lið á þeim gildum sem hafa komið félaginu á þann stað sem það er á í dag. Binni þekkir félagið vel, var í kringum okkur í úrslitakeppninni 2014, kom liðinu upp í 2. deild 2017, tók aftur við liðinu haustið 2019. Það eru spennandi tímar í vændum. Núna er ekkert annað í stöðunni en að snúa bökum saman og sækja til sigurs í næstu leikjum," segir Marteinn.
Binni Gests: Gerðum allt nema að skora
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner