Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   þri 28. júní 2022 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrrum markvörður Kórdrengja lánaður til Accrington (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Accrington Stanley greindi frá því í dag að félagið hefði fengið Lukas Jensen á láni út tímabilið.

Jensen er 23 ára markvörður sem varði mark Kórdrengja fyrri hluta síðasta tímabils, varði mark liðsins í sjö leikjum í Lengjudeildinni.

Jensen er samningsbundinn Burnley. Hann hefur áður verið lánaður til bæði Bolton og Carlisle. Accrington spilar í ensku C-deildinni, deild neðar en Burnley sem féll úr úrvalsdeildinni í vor.

Jensen hefur til þessa ekki leikið keppnisleik fyrir Burnley. Daninn er uppalinn hjá Helsingör og á eitt ár eftir af samningi sínum við Burnley.

Meira um Jensen:
Nýr markvörður Kórdrengja hætti í fótbolta til að keppa í fjallahjólreiðum
Athugasemdir
banner
banner