Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 28. júní 2022 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Newcastle kaupir Botman (Staðfest)
Botman í kapphlaupi við Kylian Mbappe.
Botman í kapphlaupi við Kylian Mbappe.
Mynd: EPA

Newcastle United er búið að staðfesta kaupin á hollenska varnarmanninum Sven Botman.


Botman er búinn að vera í Newcastle undanfarna daga þar sem hann hefur gengist undir læknisskoðun og skrifað undir samning. 

Newcastle á eftir að staðfesta undirritunina á samningnum en það er aðeins formsatriði á þessum tímapunkti.

Newcastle hafði betur gegn AC Milan í kapphlaupinu um Botman sem er talinn kosta um 30 milljónir punda.

Botman er 22 ára gamall lykilmaður í sterku liði Lille. Hann var mikilvægur hlekkur í yngri landsliðum Hollands en hefur ekki fengið tækifæri með A-landsliðinu enda er samkeppnin um miðvarðastöðurnar þar ekkert grín.


Athugasemdir
banner
banner
banner