Jón Sveins: Fótboltinn var aukaatriði
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar voru komnir niður í fallsæti þegar flautað var til leiks gegn HK í kvöld. En Framarar komust upp úr fallsætinu með því að vinna 3-2 sigur. Þungu fargi létt af þeim bláu.
Jón Sveinsson þjálfari Fram tók undir það að sigurinn í kvöld hafi veið afskaplega mikilvægur og segir að sínir menn hafi sýnt liðsframmistöðu.
„Eina sem við þurftum að fá út úr þessum leik í kvöld var sigur. Fótboltinn var algjört aukaatriði í dag," segir Jón sem tjáði sig aðeins um baráttuna í neðri hlutanum.
„Þetta er mjög þéttur pakki þarna og líka stutt í liðin fyrir ofan. Þetta er að verða bikarkeppni fyrir mörg lið og við verðum að halda áfram að sýna svona frammistöðu, þá munum við á endanum nýta það hvað við erum góðir með boltann."
Fram tapaði illa 4-0 fyrir FH í umferðinni á undan, fann Jón fyrir aukinni pressu eftir það tap?
„Það er alltaf pressa en nei, í sjálfu sér ekki. Við töluðum bara saman og vildum betri frammistöðu. Meira lið inni á vellinum, og mér fannst strákarnir skila því í dag."
Fram hefur fengið 13 af 14 stigum sínum í sumar á heimavelli.
„Við höfum líka spilið mikið hérna, en við þurfum að skoða það að fara að sækja fleiri stig á útivöllum. Annars verðum við í vandræðum í lok móts."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Jón sig nánar um leikinn, ræðir um þá ákvörðun að láta Hlyn Atla Magnússon leika sem vinstri bakvörð í kvöld og skoðar framhaldið.