Fotbolti.net
28.06.26 - 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aftur dramatískur sigur á Dalvík - „Get ekki alltaf hent í Jackson og verið með einhverja sýningu"

Auglýsing
Sigurmarkinu fagnað.

Sigurmarkinu fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Geggjað að vinna leikinn, en eins og við ræddum inni í klefa eftir leik, þá þarf spilamennskan að vera miklu betri á öllum sviðum ef við ætlum að vinna fleiri leiki í sumar og við komumst ekki mjög oft upp með það að geta ekkert í 90 mínútur. Við vorum slakara liðið allan leikinn, en það kom moment í lokin sem tryggði okkur þrjú stig og við tökum þau," segir Hörður Snævar Jónsson, þjálfari Dalvíkur/Reynis, eftir sigurinn á KFA í 2. deild í gær.

Dalvík/Reynir vann sinn fimmta sigur í röð i gær og kom markið beint úr hornspyrnu í uppbótartíma.
Eggert Gunnþór svekktur: 2004 Eggi hefði klárað þetta
TENGT EFNI

Eggert Gunnþór svekktur: 2004 Eggi hefði klárað þetta

Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 1 - 0 KFA
Var farinn að virða stigið
„Maður var eiginlega farinn að virða stigið, manni hefði bara þótt það gott stig miðað við spilamennsku okkar, en við vorum meðvitaðir um það að þeir hafa undanfarið lekið hressilega inn undir lok leikja. Ekki að það tengist eitthvað spilamennskunni, en það getur orðið sálrænt. Og það kom svo eitt mark beint úr horni frá Áka Sölvasyni sem var búinn að eiga slakan dag. Þú vinnur stundum í lottó og við unnum í lottó í dag."

Kallað eftir því að Áki færi af velli
„Það voru kannski fjórir leikmenn sem áttu fljótt á litið fínan leik, en maður er bara með ákveðið magn af skiptingum og ekki gat ég tekið alla hina út af. Áki er með reynslu, hann er á föstu leikatriðunum okkar, er okkar besti spyrnumaður í hornspyrnum. Við vildum halda honum inn á, líka upp á vinnusemina, hann er tilbúinn að hlaupa allan leikinn og þess vegna settum við hann út á kant til að hjálpa okkur varnarlega. Við vorum bara í ströggli, vorum að vonast bara eftir 1-2 færum."

Frábær hlaðvarpsþáttur
Eftir leikinn í gær hefur KFA fengið á sig fjögur mörk seint í síðustu fjórum leikjum.

„Það þarf ekki að segja leikmönnunum það, þeir fylgjast með öllum leikjum, skoða spiideo, skoða úrslit og hlusta á Harkið, frábæran hlaðvarpsþátt (á Fótbolti.net), það er frábært fyrir þessa deild að fá meiri umfjöllun. Allir í þessari deild eru að fylgjast með öllu og menn sjá alveg að þeir hafa verið (að fá á sig mörk seint í leikjum) og við bara minntum okkar menn á það fyrir leik að sama hvort við myndum lenda undir eða jöfn staða í restina, þá getur þetta orðið sálrænt. Ég veit ekki hvort það var ástæðan í dag, en við minntum okkar menn á það í dag og það heppnaðist."

Menn orðnir værukærir?
Á móti Þrótti Vogum vann Dalvík/Reynir sömuleiðis dramatískan sigur, þá tók Höddi sprett upp hliðarlínuna og hoppaði á skilti.

„Núna faðmaði ég bara Óskar (aðstoðarþjálfara), hann átti það skilið. Maður getur ekki alltaf hent í Jackson og verið með einhverja sýningu, bara þokkalega látlaust núna. Núna eru þetta orðnir fimm sigrar í röð í deildinni, maður hugsar hvort menn hafi verið orðnir værukærir, unnum frábæran 3-0 sigur á Haukum sem er besta lið deildarinnar, unnum svo 6-0 í Garðabænum. Það var svona eins og menn litu aðeins of stórt á sig og það er bara ekkert hægt í þessari deild. KFA er í 10. sæti en þeir eru með mjög öflugt lið, vængmennirnir þeirra eru sífellt ógnandi og slíkt. Þú verður að mæta 100% í alla leiki, við komumst upp með þetta í dag en við gerum það ekki oftar í sumar," segir Höddi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst. Höddi ræddi um deildina í heild, dómgæsluna í leiknum og fór svo 10 ár til baka og rifjaði upp góða tíma á EM í Frakklandi.
Höddi á hliðarlínunni í gær.

Höddi á hliðarlínunni í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Rúnar Helgi tekur sprettinn í átt að Áka Sölvasyni eftir að sá síðarnefndi skoraði sigurmarkið.

Rúnar Helgi tekur sprettinn í átt að Áka Sölvasyni eftir að sá síðarnefndi skoraði sigurmarkið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gestirnir svekktir en heimamenn kátir.

Gestirnir svekktir en heimamenn kátir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar10+1120
2Dalvík/Reynir10+619
3Kári10+1217
4Selfoss10+116
5Kormákur/Hvöt10+1215
6Fjölnir10+414
7Víkingur Ó.10-414
8KFG10-1512
9Hvíti riddarinn10-411
10KFA10+210
11Þróttur V.10-710
12Magni10-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.