Fotbolti.net
28.07.13 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Atletico selur Pizzi og fær Roberto (Staðfest)

Atletico selur Pizzi og fær Roberto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Seint á föstudagskvöldið luku viðræður milli Atletico Madrid, Real Zaragoza, Benfica, fjárfestingarfyrirtækis, Pizzi og Roberto Jimenez.

Portúgalski sóknarmaðurinn Pizzi var keyptur til Atletico frá portúgalska félaginu Braga á rúmlega 13 milljónir evra í fyrra og lék allt síðasta tímabil á láni hjá Deportivo La Coruna þar sem hann skoraði 8 mörk í 35 leikjum.
Nú er Atletico Madrid búið að losa sig við Pizzi sem gengur til liðs við Benfica. Kaupverðið er ekki gefið upp en partur af félagsskiptunum er lítill hlutur sem Benfica á í markverðinum Roberto Jimenez.

Roberto var að hluta til í eigu Benfica og Real Zaragoza en meirihlutann í honum átti fjárfestingarfyrirtæki, en nú er hann í eigu Atletico.

Heimild: Inside Spanish Football

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.