Telma Sif: Við vorum jákvæðar, í alvöru
Auglýsing

Telma Sif í leik með Víkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Telma Sif í leik með Víkingum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það sást alveg á vellinum hverjar mættu aðeins meira til leiks í dag,"</i> sagði Telma Sif Búadóttir leikmaður Víkings eftir 4 - 1 tap úti gegn Keflavík í Lengjudeildinni í kvöld en liðið fékk á sig tvö mörk rétt fyrir hálfleik og undir 2-0.
„Við vorum jákvæðar, í alvöru! Við höfum komið úr 2-0 stöðu og unnið leiki og höfðum alveg trú á þessu eins og sást kannski í byrjun hálfleiksins. Svo gerist eitthvað."
Keflavík skorar svo næstu tvö mörk í lok leiksins eftir að Víkingur hafði minnkað muninn eftir klukkutíma leik. Hvað má skrifa það á?
„Ég veit það ekki, ég held bara einbeitingaleysi. Við vorum að missa mennina of langt frá okkur og vorum ekki að fylgja þeim. Það vantaði baráttu í fyrri hálfleikinn. Við vorum að breyta liðinu aðeins en það er engin afsökun."
Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu að ofan.